Svæði 3
Svæðið nær frá hyl þrjátíu og tvö til og með sjötíu og fimm. Miklar andstæður eru á þessu svæði því er áin að renna þvert yfir hraunið og dalinn en hún kemur úr gljúfrum þar fyrir ofan. Svæðið er stórt og þarfnast talsverðrar yfirferðar.
Hylur þrjátíu og tvö er fyrsta stopp laxins eftir flúðirnar en heldur hefur þessi staður dalað í seinni tíð. Hyljir þrjátíu og þrjú og þrjátíu og fjögur eru stríðir strengir. Hylur þrjátíu og fimm hefur verið einn af aðal veiðistöðunum á flötunum, stór og djúpur strengur. Næstu hyljir hafa reynst brigðulir en þó er þrjátíu og níu nokkuð traustur þó stríður sé. Næst er því að nefna hyl fjörutíu og eitt sem er vaxandi veiðistaður, tvískiptur en oftar er laxinn í neðri hlutanum.
Næstu tveir strengir eru því miður oftast lítið reyndir því menn eru með hugann við gljúfrið og jafnvel lagðir af stað í gönguna. Þar er helst að nefna hylji númer fjörutíu og fimm og fjörutíu og sjö sem yfirleitt gefa afla. Í fjörutíu og sjö er nánast öruggt að finna lax eftir að hann er á annað borð genginn þangað upp eftir. Þegar þangað er komið má ekki gleyma að reyna í fjörutíu og átta sem er mjög stríður og djúpur strengur. Þarna getur sko verið gaman að reyna að landa vænum laxi því ef maður missir hann af stað niður ánna þá er ekki gott að stoppa hann fyrr en í fjörutíu og sjö en þar á milli eru miklar flúðir.
Hyljir fjörutíu og níu upp í sextíu og tvö eru í gljúfrinu en áin rennur frekar breið fyrir ofan það, hyljir sextíu og þrjú til sextíu og níu. Að lokum er svo heiðar svæðið frá sextíu og níu upp í sjötíu og fimm. Þetta eru margir veiðistaðir og einnig margir strengir sem ekki hafa verið merktir sem veiðistaðir en helstu staðirnir eru fimmtíu og níu og sextíu og einn, aðrir sem vert er að skoða eru: 52, 56, 57, 63, 69, 70 og 75.
Menn þurfa að gera sér grein fyrir að um talsverð ferðalög er að ræða þegar maður fer þarna upp eftir og betra er að áætla sér rúman tíma. Slóðin frá fimmtíu og níu og upp í sextíu og þrjú er varasöm og ekki æskilegt að fara hana á óbreyttum jeppum eða jepplingum, þá er betra að fara aftur út á veg og koma að ánni aftur við sextíu of sex og keyra þaðan niður í sextíu og þrjú eftir bökkunum. Til þess að fara upp í foss er hægt að keyra upp að malarnámum sem eru svolítið fyrir ofan Vopnalág og labba yfir hálsinn, það er ekki nema svona fimmtán mínútna gangur. En að sjálfsögðu er hægt að ganga neðan frá sextíu og níu upp í foss og veiða sig svo niður aftur en það tekur kannski tuttugu og fimm til þrjátíu mínútur að ganga beinustu leið uppeftir.
English
Español
Íslenska