Slideshow
Get the Flash Player to see the slideshow.
ISK Exchange Rate
   Iceland Krona Exchange Rate (http://fx-rate NULL.net/ISK/)

Svæði 2

veiðistaður 8Svæðið nær frá hyl númer tíu til og með hyl 31. Þarna rennur áin um gróin engi með fallegum bakka strengjum. Hylur tíu er frekar lygn og erfiður staður, oftast heldur laxinn sig í djúpum pytti frekar neðarlega. Hylur ellefu er stríður strengur sem hefur ekki gefið sérlega vel.

Hylur tólf er einn aðal veiðistaður þessa svæðis og núna árið 2009 er hann orðinn en lengri og dýpri. Veiða verður að norðan verðu og alls ekki að flýta sér heldur fara vel yfir allan hylinn. Á milli tólf og þrettán er áin ef til vill að búa til nýjan veiðistað sem vert er að kíkja á. Hylur þrettán er djúpur og stríður bakka strengur sem yfirleitt hefur gefið þokkalega en hann er að breytast eins og fleiri staðir í ánni. Hylur fjórtán hefur ekki reynst gjöfull í gegnum árin en breyting varð á árið 2008 og þetta orðin fallegur flugustaður.

Hyljir fimmtán og sextán voru með betri veiðistöðum í ánni en hurfu algerlega. Núna í vor virðist þó eins og áin sé byrjuð að renna aftur meira með suður bakkanum og smá vísir að streng undir steinveggnum við veginn sást. Vonandi fáum við aftur veiðistaði á þessum stað. Hylur sautján er nýr en hann var áður aðeins ofar og í kvísl sem núna er nánast þurr. Þarna koma tvær kvíslir saman í fallegan streng og þetta er vaxandi veiðistaður. Á þessu svæði kvíslast áin talsvert og rennur jöfnu leyti í dag í tveimur aðal kvíslum. Þær koma að mestu leyti saman í hyl númer átján sem hefur alltaf verið frekar traustur veiðistaður og oft gefið vel.

Hyljir nítján til tuttugu og fimm eru í nyrðri kvíslinni þar sem áður var megnið af vatnsmagninu. Þarna er hægt að hitta á laxa á göngu, sérstaklega í miklu vatni og þá helst í númer nítján og tuttugu og fjögur. Það eru byrjaðir að myndast veiðistaðir í syðri kvíslinni en hingað til hefur hún ekki gefið mikið. Þó er vert að geta lítils strengs rétt ofan við hyl átján sem og fossinn. Hylur tuttugu og sex var mjög góður og skemmtilegur staður en núna er hann síbreytilegur frá ári til árs og hefur ekki gefið eins vel.

Hyljir tuttugu og sjö og tuttugu og átta eru oft bónus fyrir þá sem þá reyna því flestir láta þá eiga sig. Hylur tuttugu og níu er falleg breiða og var gjöfull á árum áður en hefur heldur dalað. Þetta er eiginlega síðasta stopp fyrir laxinn áður en hann fer í langar flúðir til að komast upp á flatirnar og oftast er lax þarna en hann getur legið víða á breiðunni eða upp í strengnum. Hyljir þrjátíu og þrjátíu og eitt eru að mestu leyti horfnir en þó sakar ekki að kíkja í þá ef menn hafa tíma afgangs.