Slideshow
Get the Flash Player to see the slideshow.
ISK Exchange Rate
   Iceland Krona Exchange Rate (http://fx-rate NULL.net/ISK/)

Svæði 1

FossstrengirSvæðið er frá hyl númer eitt til og með númer níu. Áin rennur þarna meðfram hraunkantinum og um mjög gróið og fallegt land. Mikið landslag er í ánni á þessu svæði og þarna er einn af þeim þremur fossum sem veitt er í (hylur 4).

Hylur eitt er stór strengur sem síðan breiðir úr sér á mjög grýttri breiðu, þarna er yfirleitt mikið af laxi og hefur þetta verið lang gjöfulasti veiðistaðurinn. Laxinn getur líka legið á frekar lygnu vatni að sunnan verðu og best er að fara varlega í að vaða mikið þarna og reyna frekar að veiða af báðum bökkunum. Hyljir tvö og þrjú hafa verið svolítið rokkandi milli ára, oftar hefur númer tvö verið betri en hylur þrjú hefur unnið á en hann breytist talsvert milli ára.

Hylur fjögur er foss eins og áður sagði, mörgum kann að virðast þetta ill veiðandi og erfiður staður til fluguveiða en það skyldi engin vanmeta hyl fjögur. Oftast er lax á tiltölulega lygnu vatni í miðjum hylnum, en hann getur líka legið í strengnum sem fer með nyrðri bakkanum. Ef veitt er að norðan verðu er ekki líklegt að menn setji í marga laxa því maður lendir óhjákvæmilega alveg ofan í þeim ef maður þarf að þreyta og landa laxi þarna. Á móti kemur að það er ekki gott að landa að sunnan verðu sérstaklega ekki ef maður er einn á ferð.

Þarna  fyrir ofan er heldur rýmra um ánna og fallegir veiðistaðir. Hylur fimm er frá fossbrúninni og upp á næsta horn en áin rann með nyrðri bakkanum sem er varnargarður fyrir sumarhúsið sem þarna er en nú hefur hún grafið sér nýjan farveg og rennur með báðum bökkum. Undir garðinum var mjög fallegur og gjöfull veiðistaður en nú er erfiðara að finna legustaðinn því áin er en að grafa sér farveg og breytist mikið milli ára. Hylur sex er langur og fallegur bakkastrengur en í seinni tíð er eins og laxinn liggi mest efst í honum. Hylur sjö er þrískiptur en veiðin hefur yfirleitt verið í miðstrengnum en þó veiðast alltaf einhverjir laxar í hinum tveimur.

Vert er að reyna á brúninni fyrir ofan hyl sjö (Pallurinn) sem hefur verið kallað sjö og hálfur því þar má stundum finna laxa á göngu. Hylur átta er stór breiða sem lætur kannski ekki mjög mikið yfir sér en leynir á sér. Hér er betra að fara varlega því það er auðvelt að vaða alveg ofaní laxinn. Stundum er mikið af laxi þarna þó að maður sjái hann alls ekki og ekki er ráðlegt að veiða þennan hyl af syðri bakkanum. Hylur níu hefur breyst mikið á undanförnum árum og færst frá nyrðri bakkanum yfir að þeim syðri, vissara er að byrja frekar ofarlega í strengnum.