GISTING
Gamli bærinn á Húsafelli er frá árinu 1908 og var íbúðarhús ábúenda á Húsafelli fram til ársins 1964 . Árið 1996 var húsið endurreist af Kristleifi Þorsteinssyni og Sigrúnu Bergþórsdóttur og rekstur gistiheimilis hófst. Við endurreisn hússins var leitast við að varðveita upphaflega mynd þess og virðingu við sögu hússins gætt.


Húsreglur í Gamla bænum:
1. Við komuna í Gamla bæinn er greitt húsgjald kr. 6.000.- per mann á dag. Innifalið í húsgjaldinu eru uppbúin rúm og þrif á við brottför. Veiðimenn sjá sjálfir um að vaska upp og eiga að skila borðbúnaði og áhöldum hreinum. Ekki er leyfilegt að snæða hádegismat í húsinu, á brottfarardegi.
2. Veiðimenn mega koma í húsið einum klukkutíma fyrir upphaf veiðitímans og eiga að vera farnir úr húsinu kl. 13.00 við lok veiðitímans.
3. Til að tími vinnist til að þrífa herbergin fyrir komu næsta hóps verða veiðimenn að tæma herbergi sín að morgni brottfara- dags, áður en haldið er til veiða
4. Í Gamla bænum eru reykingar stranglega bannaðar sem og dýrahald.
5. Heitur pottur er við Gamla bæinn og hitastillir fyrir hann í eldhúsinu fyrir ofan uppþvottavélina. Vinsamlegast skilið pottinum tómum og hreinum fyrir næsta hóp.
6. Frystikista fyrir lax er í búrinu inn af eldhúsinu.
7. Ruslatunna er staðsett við tröppurnar upp að aðaldyrunum.
Simanúmer hjá Steinunni staðarhaldara á Gamla bænum er 8951342 og emailið hjá henni er sveitasetrid@simnet.is (sveitasetrid null@null simnet NULL.is)
English
Español
Íslenska