18 pundari úr Norðlingafljóti
4. ágúst 2011
Í gær kom á land sá stærsti til þessa í sumar er Senén Paz landaði 18 punda laxi eftir harða baráttu og tvo sundspretti. Laxinn tók í hyl númer 26 en tók strauið niður og náðist ekki fyrr en í hyl númer 22 en þá hafði veiðimaðurinn dottið tvisvar á bólakaf í ánna. Á meðfylgjandi mynd má sjá Senén með 18 pundarann. Annars er það að segja að Senén og fjölskylda eru búin að vera í bullandi veiði í sex daga og eru komnir rétt tæplega 200 laxar á land í heildina frá því opnað var þann 18 Júlí. Góðar heimtur hafa verið í gildrurnar undanfarið og virðist sem að allt sé komið í eðlilegt horf eftir hæga opnun í vatnsleysi.
English
Español
Íslenska