Slideshow
Get the Flash Player to see the slideshow.
ISK Exchange Rate
   Iceland Krona Exchange Rate (http://fx-rate NULL.net/ISK/)

NORÐLINGAFLJÓT Í BORGARFINordlingafljotRÐI

Norðlingafljót er ein fallegasta laxveiðiá landsins. Umhverfi árinnar er stórbrotið og ekki skemmir það fyrir að veiðivon er óvíða meiri auk þess sem veiðistaðir eru afar fjölbreyttir.

Í  Norðlingafljóti er veiðitímabilið styttra en víða annars staðar og því eru veiðitölur enn eftirtektarverðari. Norðlingafljót er tilvalinn áfangastaður fyrir fjölskyldur og veiðihópa, en í Húsafelli er að finna ýmsa þjónustu við ferðalanga.

Veiðihús er til afnota fyrir veiðimenn og gegnir gamli bærinn að Húsafelli því hlutverki. Hefur aðstaða öll verið löguð að þörfum veiðimanna.

Veiðisvæði: Svæðið er um 13 km. á lengd með 75 merktum veiðistöðum auk fjölda minni staða sem geta gefið lax.

Tímabil: 18. júlí til 30. september

Daglegur veiðitími: 7-13 og 16-22 frá 21. júlí – 14. ágúst, en eftir það frá 7-13 og 15-21.

Fjöldi stanga: Leyfðar eru fimm til sex dagsstangir

Leyfilegt agn: Fluga og maðkur

Vinsælar flugur: Frances , Snælda, Blue Charm, Hairy Mary, Collie Dog, Black Sheep, Sunray Shadow.

Svæðið er um 13 kílómetrar á lengd með 75 merktum veiðistöðum auk fjölda minni staða sem geta gefið lax.

Comments are closed.