18 pundari úr Norðlingafljóti
4. ágúst 2011
Í gær kom á land sá stærsti til þessa í sumar er Senén Paz landaði 18 punda laxi eftir harða baráttu og tvo sundspretti. Laxinn tók í hyl númer 26 en tók strauið niður og náðist ekki fyrr en í hyl númer 22 en þá hafði veiðimaðurinn dottið tvisvar á bólakaf í ánna. Á meðfylgjandi mynd má sjá Senén með 18 pundarann. Annars er það að segja að Senén og fjölskylda eru búin að vera í bullandi veiði í sex daga og eru komnir rétt tæplega 200 laxar á land í heildina frá því opnað var þann 18 Júlí. Góðar heimtur hafa verið í gildrurnar undanfarið og virðist sem að allt sé komið í eðlilegt horf eftir hæga opnun í vatnsleysi.
NORÐLINGAFLJÓT Í BORGARFI
RÐI
Norðlingafljót er ein fallegasta laxveiðiá landsins. Umhverfi árinnar er stórbrotið og ekki skemmir það fyrir að veiðivon er óvíða meiri auk þess sem veiðistaðir eru afar fjölbreyttir.
Í Norðlingafljóti er veiðitímabilið styttra en víða annars staðar og því eru veiðitölur enn eftirtektarverðari. Norðlingafljót er tilvalinn áfangastaður fyrir fjölskyldur og veiðihópa, en í Húsafelli er að finna ýmsa þjónustu við ferðalanga.
Veiðihús er til afnota fyrir veiðimenn og gegnir gamli bærinn að Húsafelli því hlutverki. Hefur aðstaða öll verið löguð að þörfum veiðimanna.
Veiðisvæði: Svæðið er um 13 km. á lengd með 75 merktum veiðistöðum auk fjölda minni staða sem geta gefið lax.
Tímabil: 18. júlí til 30. september
Daglegur veiðitími: 7-13 og 16-22 frá 21. júlí – 14. ágúst, en eftir það frá 7-13 og 15-21.
Fjöldi stanga: Leyfðar eru fimm til sex dagsstangir
Leyfilegt agn: Fluga og maðkur
Vinsælar flugur: Frances , Snælda, Blue Charm, Hairy Mary, Collie Dog, Black Sheep, Sunray Shadow.
English
Español
Íslenska